Við opnunarhátíð IOI 2018 ganga $N$ keppendur eftir línu sem táknuð er með talnalínu. Allir keppendur stefna í jákvæða átt talnalínunnar. Á tíma $0$ stendur $i$-ti keppandinn ($1 \le i \le N$, talið fremst frá) í hniti $-i$. Að auki stendur IOI-chan, fánaberinn, í hniti $0$.
Hver keppandi hefur gildi sem kallast seingangur. $i$-ti keppandinn hefur seingang $D_i$. Keppendurnir fylgja eftirfarandi reglu:
- Ef $i$-ti keppandinn er í fjarlægð sem er stærri en eða jöfn $D_i+1$ frá manneskjunni (keppanda eða IOI-chan) sem er beint fyrir framan hann eða hana, færir $i$-ti keppandinn sig á staðinn sem er í fjarlægð $1$ frá þeirri manneskju. Annars hreyfir $i$-ti keppandinn sig ekki.
IOI-chan færist um vegalengdina $1$ í jákvæða átt á línunni á hverri tímaeiningu. Keppandi færist samstundis í hvert sinn sem skilyrðið hér að ofan er uppfyllt.
Þú ert blaðamaður sem á að fjalla um opnunarhátíðina. Þú áttir að taka myndir, en þú svafst fast alla hátíðina. Það var ekkert hægt að gera við því — þú ákvaðst að svindla með því að taka myndir af salnum og teikna svo myndir af fólkinu inn á þær.
Til þess að upp um svindlið komist ekki, eða til að áætla tímann sem tekur að teikna myndirnar, viltu vita eftirfarandi $Q$ gildi:
- fjölda fólks sem stendur í hniti á milli $L_j$ og $R_j$, báðir endar meðtaldir, á tíma $T_j$ ($1 \le j \le Q$).
Verkefni
Gefinn er seingangur hvers keppanda og gögnin fyrir $Q$ spurningarnar. Skrifið forrit sem reiknar út fjölda fólks sem uppfyllir skilyrðið fyrir hverja spurningu.
Inntak
Lesið eftirfarandi gögn úr staðalinntaki.
- Fyrsta línan í inntakinu inniheldur tvær heiltölur $N$ og $Q$ aðskildar með bili. Þetta þýðir að það eru $N$ keppendur (IOI-chan ekki meðtalin) og $Q$ spurningar.
- $i$-ta línan ($1 \le i \le N$) af næstu $N$ línum inniheldur heiltölu $D_i$. Þetta þýðir að $i$-ti keppandinn fremst frá hefur seingang $D_i$.
- $j$-ta línan ($1 \le j \le Q$) af næstu $Q$ línum inniheldur þrjár heiltölur $T_j$, $L_j$ og $R_j$ aðskildar með bilum. Þessi gildi tákna $j$-tu spurninguna.
Úttak
Skrifið $Q$ línur í staðalúttak. $j$-ta línan ($1 \le j \le Q$) í úttakinu á að innihalda svarið við $j$-tu spurningunni.
Skorður
Öll inntaksgögn uppfylla eftirfarandi skilyrði.
- $1 \le N \le 500\,000$.
- $1 \le Q \le 500\,000$.
- $1 \le D_i \le 1\,000\,000\,000$ ($1 \le i \le N$).
- $1 \le T_j \le 1\,000\,000\,000$ ($1 \le j \le Q$).
- $1 \le L_j \le R_j \le 1\,000\,000\,000$ ($1 \le j \le Q$).
Undirverkefni
Það eru 3 undirverkefni. Stigagjöf og viðbótarskorður hvers undirverkefnis eru sem hér segir:
Undirverkefni 1 [7 stig]
- $D_i=1$ ($1 \le i \le N$).
Undirverkefni 2 [12 stig]
- $N \le 1\,000$.
- $Q \le 1\,000$.
- $T_j \le 1\,000$ ($1 \le j \le Q$).
- $1 \le L_j \le R_j \le 1\,000$ ($1 \le j \le Q$).
Undirverkefni 3 [81 stig]
Það eru engar viðbótarskorður.
Dæmi
Inntak 1
3 6 2 5 3 1 2 4 2 2 4 3 2 4 4 2 4 5 2 4 6 2 4
Úttak 1
0 1 1 2 1 2
Athugasemd
Í þessu sýnidæmi hreyfast keppendurnir og IOI-chan sem hér segir.
Í framhaldinu táknar bilið $[L,R]$ mengi punkta með hnit á milli $L$ og $R$, báðir endar meðtaldir, á talnalínunni.
- Á tíma $0$ stendur IOI-chan í hniti $0$. 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $-1$, $-2$ og $-3$, í sömu röð.
- Á tíma $1$ færir IOI-chan sig í hnit $1$. Engir keppendur hreyfa sig; 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $-1$, $-2$ og $-3$, í sömu röð. Þar sem enginn er á bilinu $[2,4]$ skal prenta
0fyrir 1. spurninguna. - Á tíma $2$ færir IOI-chan sig í hnit $2$. Fjarlægðin milli IOI-chan og 1. keppandans er nú $3$, svo 1. keppandinn færir sig í hnit $1$. 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $1$, $-2$ og $-3$, í sömu röð. Þar sem aðeins IOI-chan er á bilinu $[2,4]$ skal prenta
1fyrir 2. spurninguna. - Á tíma $3$ færir IOI-chan sig í hnit $3$. Engir keppendur hreyfa sig; 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $1$, $-2$ og $-3$, í sömu röð. Þar sem aðeins IOI-chan er á bilinu $[2,4]$ skal prenta
1fyrir 3. spurninguna. - Á tíma $4$ færir IOI-chan sig í hnit $4$. Fjarlægðin milli IOI-chan og 1. keppandans er nú $3$, svo 1. keppandinn færir sig í hnit $3$. 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $3$, $-2$ og $-3$, í sömu röð. Þar sem IOI-chan og 1. keppandinn eru á bilinu $[2,4]$ skal prenta
2fyrir 4. spurninguna. - Á tíma $5$ færir IOI-chan sig í hnit $5$. Engir keppendur hreyfa sig; 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $3$, $-2$ og $-3$, í sömu röð. Þar sem aðeins 1. keppandinn er á bilinu $[2,4]$ skal prenta
1fyrir 5. spurninguna. - Á tíma $6$ færir IOI-chan sig í hnit $6$. Fjarlægðin milli IOI-chan og 1. keppandans er nú $3$, svo 1. keppandinn færir sig í hnit $5$. Þá er fjarlægðin milli 1. og 2. keppandans orðin $7$, svo 2. keppandinn færir sig í hnit $4$. Ennfremur er fjarlægðin milli 2. og 3. keppandans nú $7$, svo 3. keppandinn færir sig í hnit $3$. 1., 2. og 3. keppandinn standa í hnitum $5$, $4$ og $3$, í sömu röð. Þar sem 2. og 3. keppandinn eru á bilinu $[2,4]$ skal prenta
2fyrir 6. spurninguna.
Inntak 2
4 2 1 1 1 1 2 1 4 1 3 6
Úttak 2
2 0
Athugasemd
Þetta sýnidæmi uppfyllir skorður fyrir undirverkefni 1.
Inntak 3
6 6 11 36 28 80 98 66 36 29 33 190 171 210 18 20 100 1000 900 1100 92 87 99 200 100 300
Úttak 3
1 6 0 5 2 7