Þú hefur getu til að búa til vélmenni sem hafa hæð á bilinu $[0, d]$. Til að prófa þau smíðaðir þú braut af lengd $n$ sem inniheldur nokkrar hindranir. Lýsingin á hindrununum er gefin sem fylki $a$. Ef $a_i = 0$ þá er engin hindrun í $i$-ta sæti, en annars er þar hindrun af hæð $a_i > 0$.
Til að prófa vélmennið þitt velur þú bil $[l, r]$ og lætur það fara í gegnum allar hindranir sem eru á bilinu. Þegar vélmennið mætir hindrun með gildi $a_i > 0$ gerist annað af tvennu:
- Ef núverandi hæð vélmennisins $h$ er minni en $a_i$, þá gerist ekkert þar sem vélmennið er of lágt til að rekast í hindrunina.
- Ef núverandi hæð vélmennisins $h$ er að minnsta kosti $a_i$, þá breytist nýja hæðin í $h' = h - a_i$.
Nú þarftu að svara $q$ fyrirspurnum. Fyrir hvert af $q$ bilunum $[l_i, r_i]$ þarftu að segja til um hver mesta mögulega hæðin er sem vélmennið getur endað með eftir að hafa farið í gegnum hindranirnar á bilinu ef upphafshæðin var valin af bilinu $[0, d]$.
Inntak
Fyrsta línan inniheldur heiltölurnar $n, q, d$ ($1 \le n, q \le 3 \cdot 10^5, 1 \le d \le 10^9$) — lengd fylkisins og fjölda fyrirspurna.
Önnur línan inniheldur $n$ heiltölur $a_i$ ($0 \le a_i \le 10^9$) — lýsingu á fylkinu.
Næstu $q$ línur innihalda tvennd heiltalna $[l_i, r_i]$ ($1 \le l_i \le r_i \le n$) — lýsingu á fyrirspurnunum.
Úttak
Skrifið út $q$ heiltölur — svörin við fyrirspurnunum.
Dæmi
Inntak 1
5 3 5 0 2 6 1 3 5 5 1 5 1 3
Úttak 1
2 2 3
Inntak 2
7 5 10 7 6 2 5 0 1 4 1 3 1 7 4 7 2 5 4 6
Úttak 2
3 2 3 3 4