QOJ.ac

QOJ

Time Limit: 3 s Memory Limit: 512 MB Total points: 100 Difficulty: [show] Interactive

#194. Lykilorð

Statistics

Ég gleymdi lykilorðinu mínu aftur! Ég sit við tölvuna mína og slæ inn röng lykilorð. Allt sem ég man er að lykilorðið mitt inniheldur eingöngu lágstafi. Sem betur fer svarar innskráningarkerfið með meiru en bara „rangt lykilorð“. Það segir mér líka lengd lengsta forskeytis inntaksins míns sem kemur fyrir sem (ekki endilega samfelld) hlutruna í lykilorðinu. Formlega, fyrir lykilorð $P = p_1 p_2 \dots p_N$ og inntak $Q = q_1 q_2 \dots q_N$, er svar innskráningarkerfisins stærsta $L$ sem til eru vísar $1 \le k_1 < k_2 < \dots < k_L \le N$ þannig að $q_i = p_{k_i}$ fyrir öll $1 \le i \le L$. Kerfið segir mér einnig $N$, lengd lykilorðsins míns, og $S$, sem þýðir að lykilorðið mitt notar aðeins fyrstu $S$ stafina í stafrófinu. Til dæmis þýðir $S = 4$ að lykilorðið mitt inniheldur aðeins $\text{a}$, $\text{b}$, $\text{c}$ og $\text{d}$ (en ekki endilega alla þeirra).

Vinsamlegast hjálpaðu mér að endurheimta lykilorðið mitt!

Útfærsluupplýsingar

Þetta verkefni er gagnvirkt. Þú átt að útfæra fallið

C:    char* guess(int n, int s);
C++:  string guess(int n, int s);
  • Viðföng: $N$ og $S$ eins og lýst er hér að ofan.
  • Skilagildi: rétta lykilorðið.

Forritið þitt má kalla á fallið

C:    int query(char* str);
C++:  int query(string str);
  • Viðfang: strengur með $1$ til $N$ stöfum úr fyrstu $S$ stöfum stafrófsins.
  • Skilagildi: heiltala á bilinu $0$ til lengdar str, sem táknar svar innskráningarkerfisins við fyrirspurn þinni.
  • Til að forðast þýðingarvillur skaltu lýsa þessu falli yfir með nákvæmlega textanum hér að ofan, hvar sem er í víðværu gildissviði áður en kallað er á það.
  • Þú mátt kalla á þetta fall í mesta lagi $50\,000$ sinnum fyrir hvert prófunartilvik.

Forritið þitt má skilgreina viðbótarföll.

Sýnisyfirfarari

Sýnisyfirfarari grader.{c,cpp} er látinn í té svo þú getir prófað kóðann þinn staðbundið. Sýnisyfirfararinn les inntakið úr skránni password.in á sniðinu:

  • lína $1$: $N$ $S$
  • lína $2$: lykilorð

Þú getur þýtt yfirfararann saman við lausnina þína. Síðan geturðu keyrt keyrsluskrána sem verður til svo hægt sé að prófa ágiskunaraðferðina þína á gefnu inntaki.

Undirverkefni

Prófunartilvik geta verið metin í hópum. Í röð eru undirverkefnin:

Undirverkefni Hlutfall stiga Skilyrði á inntak
1 10% $N \le S \le 26$; allir stafirnir í lykilorðinu eru ólíkir
2 20% $2 \le N \le 100$ og $2 \le S \le 4$
3 20% $2 \le N \le 2\,000$ og $2 \le S \le 20$
4 30% $2 \le N \le 3\,500$
5 20% $2 \le N \le 5\,000$

Dæmi

Látum lykilorðið vera $\text{aab}$. Yfirfararinn kallar á guess(3, 2). Kallasagan gæti verið

Kall Skilagildi
guess("ab") 2
guess("abb") 2
guess("bab") 1
guess("aab") 3

Á þessum tímapunkti ætti guess(3, 2) að skila "aab".

Editorials

IDTypeStatusTitlePosted ByLast UpdatedActions
EditorialOpen Official EditorialQingyu- Download

Discussions

About Discussions

The discussion section is only for posting: General Discussions (problem-solving strategies, alternative approaches), and Off-topic conversations.

This is NOT for reporting issues! If you want to report bugs or errors, please use the Issues section below.

Open Discussions 0
No discussions in this category.

Issues

About Issues

If you find any issues with the problem (statement, scoring, time/memory limits, test cases, etc.), you may submit an issue here. A problem moderator will review your issue.

Guidelines:

  1. This is not a place to publish discussions, editorials, or requests to debug your code. Issues are only visible to you and problem moderators.
  2. Do not submit duplicated issues.
  3. Issues must be filed in English or Chinese only.
Active Issues 0
No issues in this category.
Closed/Resolved Issues 0
No issues in this category.