Ég gleymdi lykilorðinu mínu aftur! Ég sit við tölvuna mína og slæ inn röng lykilorð. Allt sem ég man er að lykilorðið mitt inniheldur eingöngu lágstafi. Sem betur fer svarar innskráningarkerfið með meiru en bara „rangt lykilorð“. Það segir mér líka lengd lengsta forskeytis inntaksins míns sem kemur fyrir sem (ekki endilega samfelld) hlutruna í lykilorðinu. Formlega, fyrir lykilorð $P = p_1 p_2 \dots p_N$ og inntak $Q = q_1 q_2 \dots q_N$, er svar innskráningarkerfisins stærsta $L$ sem til eru vísar $1 \le k_1 < k_2 < \dots < k_L \le N$ þannig að $q_i = p_{k_i}$ fyrir öll $1 \le i \le L$. Kerfið segir mér einnig $N$, lengd lykilorðsins míns, og $S$, sem þýðir að lykilorðið mitt notar aðeins fyrstu $S$ stafina í stafrófinu. Til dæmis þýðir $S = 4$ að lykilorðið mitt inniheldur aðeins $\text{a}$, $\text{b}$, $\text{c}$ og $\text{d}$ (en ekki endilega alla þeirra).
Vinsamlegast hjálpaðu mér að endurheimta lykilorðið mitt!
Útfærsluupplýsingar
Þetta verkefni er gagnvirkt. Þú átt að útfæra fallið
C: char* guess(int n, int s);
C++: string guess(int n, int s);
- Viðföng: $N$ og $S$ eins og lýst er hér að ofan.
- Skilagildi: rétta lykilorðið.
Forritið þitt má kalla á fallið
C: int query(char* str);
C++: int query(string str);
- Viðfang: strengur með $1$ til $N$ stöfum úr fyrstu $S$ stöfum stafrófsins.
- Skilagildi: heiltala á bilinu $0$ til lengdar
str, sem táknar svar innskráningarkerfisins við fyrirspurn þinni. - Til að forðast þýðingarvillur skaltu lýsa þessu falli yfir með nákvæmlega textanum hér að ofan, hvar sem er í víðværu gildissviði áður en kallað er á það.
- Þú mátt kalla á þetta fall í mesta lagi $50\,000$ sinnum fyrir hvert prófunartilvik.
Forritið þitt má skilgreina viðbótarföll.
Sýnisyfirfarari
Sýnisyfirfarari grader.{c,cpp} er látinn í té svo þú getir prófað kóðann þinn staðbundið. Sýnisyfirfararinn les inntakið úr skránni password.in á sniðinu:
- lína $1$: $N$ $S$
- lína $2$: lykilorð
Þú getur þýtt yfirfararann saman við lausnina þína. Síðan geturðu keyrt keyrsluskrána sem verður til svo hægt sé að prófa ágiskunaraðferðina þína á gefnu inntaki.
Undirverkefni
Prófunartilvik geta verið metin í hópum. Í röð eru undirverkefnin:
| Undirverkefni | Hlutfall stiga | Skilyrði á inntak |
|---|---|---|
| 1 | 10% | $N \le S \le 26$; allir stafirnir í lykilorðinu eru ólíkir |
| 2 | 20% | $2 \le N \le 100$ og $2 \le S \le 4$ |
| 3 | 20% | $2 \le N \le 2\,000$ og $2 \le S \le 20$ |
| 4 | 30% | $2 \le N \le 3\,500$ |
| 5 | 20% | $2 \le N \le 5\,000$ |
Dæmi
Látum lykilorðið vera $\text{aab}$. Yfirfararinn kallar á guess(3, 2). Kallasagan gæti verið
| Kall | Skilagildi |
|---|---|
guess("ab") |
2 |
guess("abb") |
2 |
guess("bab") |
1 |
guess("aab") |
3 |
Á þessum tímapunkti ætti guess(3, 2) að skila "aab".