Gefin er heiltala $n$ ($2 \le n \le 100000000$). Skrifið forrit sem finnur minnstu jákvæðu heiltöluna $m$ þannig að $m$ hrópmerkt sé deilanlegt með $n$. Hér, fyrir jákvæða heiltölu $m$, merkir $m$ hrópmerkt margfeldi allra heiltalna frá $1$ upp í $m$.
Inntak
Inntakið er gefið í skránni factorial.in. Þessi skrá samanstendur af einni línu sem inniheldur heiltöluna $n$.
Úttak
Forritið á að skrifa niðurstöðuna á staðalúttak. Skrifið út eina línu sem inniheldur eingöngu heiltöluna $m$.
Dæmi
Inntak 1
10
Úttak 1
5
Inntak 2
12
Úttak 2
4